Giovanna, Hafdís og Ottó ráðgjafar hjá Expectus

Ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækið Expectus hefur ráðið til sín þrjá sérfræðinga, þau Giovönnu, Hafdísi og Ottó.


Giovanna Steinvör er með B.A. gráðu í hag- og tölvufræði frá Københavns Erhvervsakademi og er að klára M.Sc. gráðu í hagnýtum gagnavísindum í Háskólanum í Reykjavík. Áður starfaði Giovanna sem sérfræðingur í greiningum á sölusviði Icelandair þar sem hún vann í mörgum þverfaglegum teymum í greiningum, stefnumótun og miðlun gagna. Hjá Expectus mun Giovanna leggja megináherslu innleiðingu viðskiptagreindar með exMon, TimeXtender, PowerBI og fleiri lausnum.


Hafdís Mist er með B.Sc gráðu í Iðnaðarverkfræði frá HÍ og M.Sc gráðu í Iðnaðarverkfræði og stjórnun frá Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn (DTU) með áherslu á gagnagreiningu og bestun. Áður starfaði Hafdís hjá VÍS í fjármáladeild sem sérfræðingur í innheimtu. Hjá Expectus mun Hafdís leggja megináherslu á innleiðingu viðskiptagreindar með Kepion, TimeXtender, exMon, Tableau og fleiri lausnum.


Ottó Rafn starfaði áður hjá Skeljungi þar sem hann sá um rekstur á tölvuumhverfi þeirra. Hjá Skeljungi vann hann að mjög fjölbreyttum verkefnum á borð við flutning umhverfis þeirra í hýsingu, útskiptingu fjárhagskerfis og skráningu félagsins á markað. Hjá Expectus mun Ottó leggja megináherslu á innleiðingu viðskiptagreindarumhverfis hjá fyrirtækjum með áherslu á Azure lausnir og nýta sérþekkingu sýna í kerfismálum.


„Það er orðin krafa í nútímafyrirtækjarekstri að stjórnendur og starfsmenn geti tekið gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á traustum rauntímaupplýsingum. Gríðarleg þróun hefur verið í gagnalausnum undanfarin ár sem gerir fyrirtækjum kleift að ná árangri hraðar en áður. Við hjá Expectus höfum aðstoðað fyrirtæki við val og innleiðingu þessara lausna og eru þau Giovanna, Hafdís og Ottó frábær viðbót í öflugan ráðgjafahóp Expectus” segir Gunnar Steinn Magnússon, framkvæmdastjóri Expectus, í tilkynningu frá félaginu.

Hafðu samband

Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband eins fljótt og hægt er.

Contact Us

23 Apr, 2024
Nýjasta mælaborð Expectus sýnir niðurstöður úr könnunum sem gerðar hafa verið vegna komandi forsetakosninga. Mælaborðið er unnið úr gögnum frá Hagstofu Íslands, Vísir.is og Mbl.is og eru gögnin sett upp í ExmonDM og unnið í mælaborðatólinu Tableau. Notendur sjá niðurstöður kannana mismunandi miðla og geta einnig skoðað söguleg gögn um forsetakosningar á Íslandi.
18 Apr, 2024
Á aðalfundi ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækisins Expectus sem haldinn var í byrjun mars voru þau Edda Valdimarsdóttir Blumenstein og Helgi Logason tekin inn í eigendahóp Expectus. Bætast þau við þann öfluga hóp eigenda sem fyrir var en nokkur kynslóðaskipti hafa orðið í hópnum á undanförnum árum. Þannig hafa eldri ráðgjafar vikið og yngra fólk er komið inn í staðinn. „Ég er virkilega stolt og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt að vera komin í eigendahóp Expectus og er full tilhlökkunar að halda áfram að vinna að vexti fyrirtækisins í nýju hlutverki,“ segir Edda. Helgi tekur í sama streng: „Ég er fullur tilhlökkunar fyrir nýju hlutverki hjá Expectus. Það eru gríðarlega spennandi tímar fram undan í hvernig fyrirtæki geta nýtt sér gögn og nýjustu tækni og Expectus er í lykilstöðu til að leiða þá þróun.“ Expectus aðstoðar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins við að nýta upplýsingatæknina til að taka gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á rauntímaupplýsingum og ná þannig mælanlegum og varanlegum árangri í rekstrinum. Reynir Ingi Árnason er framkvæmdastjóri Expectus: „Við erum gríðarlega ánægð með að fá þau tvö til liðs við eigendahópinn og hlökkum til að takast á við komandi verkefni með mjög svo öflugt teymi. Það er líka sérlega ánægjulegt að fá unga konu eins og Eddu inn í þennan hóp en kona hefur ekki verið meðal eigenda Expectus síðan 2018,“ segir Reynir. Expectus var stofnað árið 2009 og hjá fyrirtækinu starfa nú yfir 30 sérfræðingar á sviði stjórnunar, reksturs, tækni og hugbúnaðargerðar .
Share by: