Laus störf

Expectus er ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtæki sem aðstoðar stærstu fyrirtæki landsins við að ná varanlegum árangri með því að nýta sér rauntímaupplýsingar til ákvarðanatöku.


Við vinnum náið með okkar viðskiptavinum við að hanna og viðhalda framúrskarandi stjórnendaupplýsingum og gerum þeim kleift að spyrja og svara sínum eigin spurningum á einfaldan hátt. Þessa hæfni byggjum við á bestu aðferðarfræðum og hugbúnaði hverju sinni.



Hjá Expectus starfa yfir 30 sérfræðingar í ráðgjöf & hugbúnaðargerð og við erum stolt af því að hafa verið valið bæði Fyrirtæki Ársins og Fyrirmyndarfyrirtæki hjá VR árlega síðastliðin ár.

Nýjustu störfin

Við vinnum náið með stærstu fyrirtækjum landsins í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum sem gerir þeim kleift að ná varanlegum árangri í rekstri með því að móta og innleiða gagnadrifna menningu og nýta sér rauntímaupplýsingar til ákvarðanatöku.

Almenn umsókn

Vilt þú hafa raunveruleg áhrif og vera hluti af teymi leiðandi sérfræðinga? Hjá Expectus starfa yfir 30 sérfræðingar með ólíkan bakgrunn í ýmist ráðgjöf eða hugbúnaðargerð. Við vinnum náið með stærstu fyrirtækjum landsins í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum sem gerir þeim kleift að ná varanlegum árangri í rekstri með því að móta og innleiða gagnadrifna menningu og nýta sér rauntímaupplýsingar til ákvarðanatöku.

Lesa meira

Samfélagsleg ábyrgð

Við hvetjum starfsfólk til að verja allt að tveimur dögum á ári í þágu samfélagslegra verkefna, þar sem þeirra sérfræðiþekking nýtist til góðra málefna. Einnig leggjum við áherslu á verkefni innanhúss á sviði samfélagslegrar ábyrgðar sem snúa að minnkun kolefnisspors, flokkun sorps og bættri heilsu starfsfólks.


Expectus leggur mikla áherslu á jafnréttismál og vinnum við markvisst að því að jafna kynjahlutföll í störfum innan fyrirtækisins.


Jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu okkar má finna hér að neðan.

Jafnlaunastefna

Fyrirmyndarfyrirtæki

Fyrirmyndar-fyrirtæki

Við erum auðmjúk og stolt að hafa verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki og Fyrirtæki Ársins hjá VR síðastliðin ár.

Starfsumhverfi

Expectus er fjölskyldumiðaður vinnustaður og við leggjum okkur fram við að skapa einstakt vinnuumhverfi og veita tækifæri til starfsþróunar.

Hreyfing

Okkur er annt um líkamlega- og andlega heilsu starfsfólks og veitum árlegan líkamsræktarstyrk

Vinnutími

Sveigjanlegur vinnutími

Skemmtun

Við elskum að hafa gaman og erum reglulega með skemmtilega viðburði á dagskrá

Matur

Hádegismatur á skrifstofunni alla daga. Nasl og drykkir eru einnig á boðstólnum fyrir starfsfólk, gesti og gangandi

Búnaður

Við erum með fyrsta flokks starfsbúnað fyrir okkar starfsfólk. Einnig er í boði árlegur tækjastyrkur.

Share by: