Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus

Á aðalfundi ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækisins Expectus sem haldinn var í byrjun mars voru þau Edda Valdimarsdóttir Blumenstein og Helgi Logason tekin inn í eigendahóp Expectus. Bætast þau við þann öfluga hóp eigenda sem fyrir var en nokkur kynslóðaskipti hafa orðið í hópnum á undanförnum árum. Þannig hafa eldri ráðgjafar vikið og yngra fólk er komið inn í staðinn. 


„Ég er virkilega stolt og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt að vera komin í eigendahóp Expectus og er full tilhlökkunar að halda áfram að vinna að vexti fyrirtækisins í nýju hlutverki,“ segir Edda. Helgi tekur í sama streng: „Ég er fullur tilhlökkunar fyrir nýju hlutverki hjá Expectus. Það eru gríðarlega spennandi tímar fram undan í hvernig fyrirtæki geta nýtt sér gögn og nýjustu tækni og Expectus er í lykilstöðu til að leiða þá þróun.“


Expectus aðstoðar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins við að nýta upplýsingatæknina til að taka gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á rauntímaupplýsingum og ná þannig mælanlegum og varanlegum árangri í rekstrinum. Reynir Ingi Árnason er framkvæmdastjóri Expectus: „Við erum gríðarlega ánægð með að fá þau tvö til liðs við eigendahópinn og hlökkum til að takast á við komandi verkefni með mjög svo öflugt teymi. Það er líka sérlega ánægjulegt að fá unga konu eins og Eddu inn í þennan hóp en kona hefur ekki verið meðal eigenda Expectus síðan 2018,“ segir Reynir. 


Expectus var stofnað árið 2009 og hjá fyrirtækinu starfa nú yfir 30 sérfræðingar á sviði stjórnunar, reksturs, tækni og hugbúnaðargerðar .

Hafðu samband

Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband eins fljótt og hægt er.

Contact Us

December 12, 2024
Stefán Rafn Stefánsson, framkvæmdastjóri Cubus, Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus, Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður Expectus og Andri Páll Heiðberg, stjórnarformaður og ráðgjafi hjá Cubus.
September 11, 2024
Ráðgjafarfyrirtækið Expectus hefur ráðið til sín tvo nýja sérfræðinga sem munu starfa að viðskiptagreindarráðgjöf. Jason Andri Gíslason er stærðfræðingur með meistaragráðu í viðskiptagreiningu frá Imperial College í London. Jason hefur reynslu af rannsóknarstörfum fyrir Háskóla Íslands auk þess að hafa starfað við viðskiptagreiningu hjá Landsvirkjun. „Ég er virkilega ánægður með að ganga til liðs við Expectus,“ segir Jason. „Expectus hefur byggt upp trausta stöðu á markaðnum með framúrskarandi þjónustu og lausnum á sviði viðskiptagreindar. Það verður spennandi að taka þátt í næstu skrefum vaxtar og framþróunar ásamt hæfileikaríku samstarfsfólki og ég hlakka til að mæta krefjandi verkefnum sem munu stuðla að enn frekari velgengni fyrirtækisins.“ Gréta Toredóttir er rekstrarverkfræðingur með meistaragráðu frá King's College í London. Starfsreynsla Grétu felst í ferlagreiningu og spálíkanagerð sem hún sinnti hjá Coripharma og KPMG en hún á einnig að baki áralangan feril sem fimleikaþjálfari. Gréta er gríðarlega spennt fyrir starfinu hjá Expectus. „Þetta fer mjög vel af stað og ég hlakka mikið til þess að takast á við krefjandi verkefni og skila viðskiptavinum okkar því gríðarlega virði sem felst í að fá skýra sýn á reksturinn sinn.“ „Það er orðin krafa í nútímafyrirtækjarekstri að stjórnendur og starfsmenn geti tekið gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á traustum rauntímaupplýsingum. Gríðarleg þróun hefur verið í gagnalausnum undanfarin ár sem gerir fyrirtækjum kleift að ná árangri hraðar en áður. Við hjá Expectus höfum aðstoðað fyrirtæki við val og innleiðingu þessara lausna og eru þau Jason og Gréta frábær viðbót í öflugan ráðgjafahóp Expectus,” segir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus. Expectus er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í upplýsingatækni, rekstrarráðgjöf, stefnumótun og viðskiptagreind. Fyrirtækið var stofnað árið 2009. Nánari upplýsingar veitir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus, í síma 867 4999 .
Share by: