Forsetakosningar á Íslandi

Nýjasta mælaborð Expectus sýnir niðurstöður úr könnunum sem gerðar hafa verið vegna komandi forsetakosninga. Mælaborðið er unnið úr gögnum frá Hagstofu Íslands, Vísir.is og Mbl.is og eru gögnin sett upp í ExmonDM og unnið í mælaborðatólinu Tableau. Notendur sjá niðurstöður kannana mismunandi miðla og geta einnig skoðað söguleg gögn um forsetakosningar á Íslandi.

Giovanna Steinvör Cuda, gagnasérfræðingur hjá Expectus, vann mælaborðið. „Forsetakosningar eru í brennidepli í öllum fréttamiðlum og er flóran af frambjóðendum mikil. Gögnin voru tekin saman til gamans til að fylgjast með hvernig frambjóðendur eru að koma út úr nýjustu könnunum og breytingar frá fyrri könnunum. Mælaborðið sýnir einnig sögulegar niðurstöður forsetakosninga á Íslandi frá upphafi. Það er ógrynni af gögnum hjá hjá Hagstofu Íslands og hjá hinum ýmsum fyrirtækjum, sem geta skilað miklum verðmætum ef sett eru rétt fram. Við hjá Expectus sérhæfum okkur í því“, segir Giovanna.


Forsetakosningamælaborðið er áhugavert og gagnlegt fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér hvernig núverandi frambjóðendur standa og hvernig umræðan hefur áhrif á niðurstöður þeirra í könnunum. Við hjá Expectus hvetjum alla að nýta kosningaréttinn sinn þann 1. júní 2024.

Hafðu samband

Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband eins fljótt og hægt er.

Contact Us

December 12, 2024
Stefán Rafn Stefánsson, framkvæmdastjóri Cubus, Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus, Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður Expectus og Andri Páll Heiðberg, stjórnarformaður og ráðgjafi hjá Cubus.
September 11, 2024
Ráðgjafarfyrirtækið Expectus hefur ráðið til sín tvo nýja sérfræðinga sem munu starfa að viðskiptagreindarráðgjöf. Jason Andri Gíslason er stærðfræðingur með meistaragráðu í viðskiptagreiningu frá Imperial College í London. Jason hefur reynslu af rannsóknarstörfum fyrir Háskóla Íslands auk þess að hafa starfað við viðskiptagreiningu hjá Landsvirkjun. „Ég er virkilega ánægður með að ganga til liðs við Expectus,“ segir Jason. „Expectus hefur byggt upp trausta stöðu á markaðnum með framúrskarandi þjónustu og lausnum á sviði viðskiptagreindar. Það verður spennandi að taka þátt í næstu skrefum vaxtar og framþróunar ásamt hæfileikaríku samstarfsfólki og ég hlakka til að mæta krefjandi verkefnum sem munu stuðla að enn frekari velgengni fyrirtækisins.“ Gréta Toredóttir er rekstrarverkfræðingur með meistaragráðu frá King's College í London. Starfsreynsla Grétu felst í ferlagreiningu og spálíkanagerð sem hún sinnti hjá Coripharma og KPMG en hún á einnig að baki áralangan feril sem fimleikaþjálfari. Gréta er gríðarlega spennt fyrir starfinu hjá Expectus. „Þetta fer mjög vel af stað og ég hlakka mikið til þess að takast á við krefjandi verkefni og skila viðskiptavinum okkar því gríðarlega virði sem felst í að fá skýra sýn á reksturinn sinn.“ „Það er orðin krafa í nútímafyrirtækjarekstri að stjórnendur og starfsmenn geti tekið gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á traustum rauntímaupplýsingum. Gríðarleg þróun hefur verið í gagnalausnum undanfarin ár sem gerir fyrirtækjum kleift að ná árangri hraðar en áður. Við hjá Expectus höfum aðstoðað fyrirtæki við val og innleiðingu þessara lausna og eru þau Jason og Gréta frábær viðbót í öflugan ráðgjafahóp Expectus,” segir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus. Expectus er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í upplýsingatækni, rekstrarráðgjöf, stefnumótun og viðskiptagreind. Fyrirtækið var stofnað árið 2009. Nánari upplýsingar veitir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus, í síma 867 4999 .
Share by: