Breytingar í stjórnendateymi Expectus og ExMon Software

Gunnar Steinn Magnússon, framkvæmdastjóri ExMon Software  og •	Sindri Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Expectus

ExMon Software, systurfyrirtæki ráðgjafafyrirtækisins Expectus, hefur verið í miklum vexti undanfarið og hefur aukin áhersla verið lögð á sókn á alþjóðlega markaði. Til að styðja þá sókn hefur Gunnar Steinn Magnússon, sem áður var framkvæmdastjóri bæði Expectus og ExMon Software, fært sig að fullu til ExMon Software. Fyrirtækið þróar gagnalausnina exMon sem hjálpar fyrirtækjum að bæta gæði gagna í viðskiptaferlum sínum og þannig koma í veg fyrir fjárhagslegt tjón, s.s. tekjuleka. Yfir 150 fyrirtæki á Íslandi og víðar nota exMon til að bæta rekstur sinn.

 

„Við höfum undanfarið náð góðum árangri á Norðurlöndunum, sem styrkir okkur í þeirri trú að það sé umtalsverð þörf fyrir exMon utan landsteinanna. Síðastliðið vor réðum við fyrsta starfsfólkið í Danmörku og erum nú með stóra endursöluaðila sem eru að sjá mikil tækifæri fyrir exMon á sínum mörkuðum. Það er mikill vöxtur fram undan og nauðsynlegt að styðja hann vel.“, segir Gunnar Steinn.

 

Samhliða þessum breytingum hefur Sindri Sigurjónsson, áður stjórnarformaður Expectus, verið ráðinn framkvæmdastjóri Expectus. Með þessum breytingum verður settur enn skarpari fókus á að styðja íslensk fyrirtæki í því að skilgreina skýra stefnu og koma henni í framkvæmd með því að nýta sér gögn til ákvarðanatöku.

 

„Hlutverk Expectus hefur frá upphafi verið að skila framúrskarandi árangri til okkar viðskiptavina með því að finna bestu lausnir hvaðanæva að, aðlaga að íslenskum aðstæðum og gera þær enn betri.

Við erum sífellt að bæta í þjónustu- og lausnaframboð okkar og miðum ávallt við að bjóða viðskiptavinum þær lausnir sem henta þeim og þeirra starfsemi. Þannig festum við okkur ekki við einn framleiðanda heldur veljum besta kostinn hverju sinni“, segir Sindri.

 

Hjá Expectus og ExMon Software starfa um 40 ráðgjafar og hugbúnaðarsérfræðingar í því að innleiða gagnadrifna menningu hjá íslenskum fyrirtækjum. Expectus er Fyrirtæki ársins hjá VR árið 2022.


Hafðu samband

Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband eins fljótt og hægt er.

Contact Us

December 12, 2024
Stefán Rafn Stefánsson, framkvæmdastjóri Cubus, Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus, Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður Expectus og Andri Páll Heiðberg, stjórnarformaður og ráðgjafi hjá Cubus.
September 11, 2024
Ráðgjafarfyrirtækið Expectus hefur ráðið til sín tvo nýja sérfræðinga sem munu starfa að viðskiptagreindarráðgjöf. Jason Andri Gíslason er stærðfræðingur með meistaragráðu í viðskiptagreiningu frá Imperial College í London. Jason hefur reynslu af rannsóknarstörfum fyrir Háskóla Íslands auk þess að hafa starfað við viðskiptagreiningu hjá Landsvirkjun. „Ég er virkilega ánægður með að ganga til liðs við Expectus,“ segir Jason. „Expectus hefur byggt upp trausta stöðu á markaðnum með framúrskarandi þjónustu og lausnum á sviði viðskiptagreindar. Það verður spennandi að taka þátt í næstu skrefum vaxtar og framþróunar ásamt hæfileikaríku samstarfsfólki og ég hlakka til að mæta krefjandi verkefnum sem munu stuðla að enn frekari velgengni fyrirtækisins.“ Gréta Toredóttir er rekstrarverkfræðingur með meistaragráðu frá King's College í London. Starfsreynsla Grétu felst í ferlagreiningu og spálíkanagerð sem hún sinnti hjá Coripharma og KPMG en hún á einnig að baki áralangan feril sem fimleikaþjálfari. Gréta er gríðarlega spennt fyrir starfinu hjá Expectus. „Þetta fer mjög vel af stað og ég hlakka mikið til þess að takast á við krefjandi verkefni og skila viðskiptavinum okkar því gríðarlega virði sem felst í að fá skýra sýn á reksturinn sinn.“ „Það er orðin krafa í nútímafyrirtækjarekstri að stjórnendur og starfsmenn geti tekið gagnadrifnar ákvarðanir byggðar á traustum rauntímaupplýsingum. Gríðarleg þróun hefur verið í gagnalausnum undanfarin ár sem gerir fyrirtækjum kleift að ná árangri hraðar en áður. Við hjá Expectus höfum aðstoðað fyrirtæki við val og innleiðingu þessara lausna og eru þau Jason og Gréta frábær viðbót í öflugan ráðgjafahóp Expectus,” segir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus. Expectus er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í upplýsingatækni, rekstrarráðgjöf, stefnumótun og viðskiptagreind. Fyrirtækið var stofnað árið 2009. Nánari upplýsingar veitir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus, í síma 867 4999 .
Share by: